Tomorrow Never Knows
Fréttir og annað minna áhugavert
Dagsetning
10. febrúar 2012
20.09.2007 22:57:12 / Harsenal

Lengi er von á einu

Þessi pistill er fyrir hana Nínu frænku sem hefur komið oftar á síðuna eftir að ég tók mér pásu frá blogginu heldur en allir aðrir gerðu til samans á meðan eitthvað var ritað á þessa síðu. Ekkert nema gott um það að segja.

Annars er nú fátt að frétta nema það að lögregla landsins tók sér frí frá því að sekta fólk fyrir að kasta af sér vatni og væla yfir ólátum í miðbæ Reykjavíkur og tók ein 60kg af amfetamíni af Skútu í einhverju krummaskuði, hét Fáð-skrúðs-fjörður eða eitthvað.

Ég hef lítið getað sofið síðustu daga fyrir martröðum, sá skelfilegan atburð í sjónvarpinu um daginn, hann hét "Endurkoma Britney!". Er þetta ekki komið gott hjá henni blessuninni, held hún hafi misst seinustu 2 hlustendur sína þetta kvöld.

En ég ætla að reyna að gera meira af þessu á næstunni svo stay wired!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 15:06:59 / Harsenal

Er ekki komið nóg af þessum snjó?!?!?!

Gleðilegt ár kæru lesendur og afsakið blogg leysi undanfarið, ég hef bara ekki nennt að skrifa neitt.

Mér finnst ég verða að nota þann öfluga miðill sem internetið er til að skrifa kvörtun á tvo staði. Fyrst og fremst er það til veðurguðana, sem ákváðu skyndilega að senda allan þann snjó sem skíðamenn hafa beðið eftir undanfarinn ár niður á einu bretti. Og ég held að það hafi af hluta til verið gert til að bögga mig, því ég HATA snjó!!! Ég stunda ekki skíði svo það eina sem þessi snjór gerir mér er að festa bílinn minn annars lagið og bleyta lappirnar á mér þegar ég voga mér að stíga útúr húsi, æði mar!!!

Hin kvörtuninn er svo í beinu framhaldi af kvörtuninni yfir öllum snjónum, en hún er til þeirra ágætu manna sem keppast við að skafa götur bæjarins. Sem ég sé ekki að þurfi að gera, allavega ekki á meðan þeir skafa allan snjóinn fyrir framan innkeyrslur bæjarbúa svo að þegar maður vaknar á morgnanna er búið að skafa allar götur en þú kemst ekki útá götuna. Svo þar fór allur þessi tími sem fór í að skafa fór fyrir lítið!!! Fyrir mér er þetta svona svipað og að byggja hús og setja engar hurðir!!!

Jæja ég er farinn út að moka

Leighters!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:14:03 / Harsenal

Til hamingju með jólinn :)

Til lukku samsveitarmenn nær og fjær. Njótið jólanna Doninn

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 15:18:50 / Harsenal

Úkranía er framtíðin í ferðamennskunni

Var að koma úr keppnisferð til Úkraníu og þangað fer ég aldrei aftur, þvílík hörmung!!! Það er ekki eitt einasta mannsbarn sem skilur eða hvað þá heldur talar ensku. Það sem manni kveið mest fyrir áður en farið var í ferðina var að fljúga innalands í þessu landi mistakana, og ekki minnkaði kvíðinn þegar inn í vélina var komið enda kannaðist maður við vélina af myndum með Wright bræðrum sem smíðuðu hana.

Í Úkraníu er aldrei eldað neitt nema því sé velt uppúr eggjahræru,sem er ekki slæmt, fyrr en á öðrum degi og eftir að hafa borðað McDonalinski sem er búið að velta uppúr hrærunni.

Vegabréf er ekki nauðsynlegt til að komast inní landið, heldur þarftu að sýna sígarettupakka. Í Úkraníu eru sígarettur, vodka og yfirvaraskegg algengar vöggugjafir. Það er meiri mengun af reykingum í Úkraníu en af stóryðju á Íslandi.

Semsagt í stuttumáli vara ég alla við ferðum til Úkraíninski og vona að ég nái að bjarga einhverjum frá viðbjóði,

 Doninn


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 20:35:00 / Harsenal

Klöppum fyrir flugmanninum sem lenti flugvélinni!!!

Já góðir hálsar það er eitt sem fer meira í taugarnar á mér en margt annað og það er þegar fólk klappar í flugvél þegar henni hefur verið lent! Ég meina við hverju býst fólk???? Er það ekki það minnsta sem við getum ætlast til af lærðum flugmanni að hann geti lent rellunni???? Ég hef ekki enþá séð einhvern klappa fyrir kassadömunni í bónus þegar hún er búin að renna öllum vörunum í gegn og spyrja hvað þú viljir marga poka, þó að það sé alveg jafn mikill partur af hennar starfi og það að lenda hel***** rellunni, og þessi störf eru jú bæði í þjónustugeiranum.

Já þá er ég búinn að koma því á framfæri. Einnig er ég með áríðandi tilkynningu, þannig er mál með vexti að ég hef ákveðið að senda engin jólakort í ár heldur ætla ég að gefa öllum sem eru svo heppnir að vera á jólakortalista donsins eitt stykki enskt fótboltalið eins og sönnum íslending sæmir.

Tak skal du hedt eða eitthvað í þá áttina


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 19:18:14 / Harsenal

Jæja þá er það byrjað

Jæja Íslendingar bara farnir að veiða hvali aftur. Og það barst tilkynning frá áhöfn hvalaskoðunarskipsins Moby Dick og er hún svo hljóðandi:

"Vegna þess að nú eru hvalveiðar orðnar löglegar á ný verður ekki boðið upp á sjóstangarveiði í ferðum Moby Dick, heldur höfum við komið fyrir skutuli og býðst fólki að veiða hrefnur á meðan á ferðunum stendur."                     áhöfnin á Moby Dick

Já það er ekki slæmt að fá að henda sér svona beint í "actionið". Bretar og Bandaríkjamenn eru víst ekkert alltof sáttir með framgöngu okkar víkingana. Bandaríkjamenn eru nátúrulega einstakt safn af hálfvitum, þeir stunda víst sjálfir hvalveiðar fyrir utan Alaska. En vegna þess að þeir kalla það "rétt strandarbúa til að veiða sér mat" eða e-ð álíka klisjukennt er það ekki flokkað sem hvalveiðar. IDIOTS!!!

Var gripinn glóðvolgur í Kringlunni í gær af manni frá útvapsþættinum Hlaupanótan sem allir alvöru Mozart "fanatics" ættu að þekkja, ég var í mestu makindum að hella málningu (já það er málning en ekki máling, mér finnst líka eins og ég hafi verið blekktur í æsku) þegar maðurinn kom að mér og samtalið var einhvern veginn svona:

útvarpsmaður: Góðan daginn, er þér sama þótt ég trufli þig aðeins?

ég: Já, ekki málið.

útvarpsmaður: Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir nafnið Jón Leifs?

ég: UHM.....Eiginlega ekkert sko. (vissi ekki alveg hvað ég átti að segja) 

útvarpsmaður: Þú veist hver það er, er það ekki? 

ég: Jú!

útvarpsmaður: Þá veistu að hann var tónskáld? 

ég: Jebb.

útvarpsmaður: Hefur eitthvað heyrt af tónlistinni hans? 

ég: Jaaa, ég sá myndina þarna Tár úr steini. 

útvarpsmaður: Og hvernig fannst þér tónlistin í henni? 

meningarlegi ég: Ekkert minnistæð frekar en myndin. 

Og þá brosti útvarpsmaðurinn þakkaði fyrir og gekk í burtu og ég efa stórlega að þetta verði nokkurntíma flutt í útvarpinu.

Setning dagsins: Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir nafnið Jón Leifs???

Það skal tekið fram að þetta er ekki alvöru yfirlýsing frá Moby Dick


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 21:49:31 / Harsenal

Margt smátt

Sæll blogg unnandi, já óhætt að segja að kommemtunum hafi ringt inn á undanfarna pistla hjá mér. Maður tárast þegar maður lítur á síðuna og sér þvílíkan áhuga fólk hefur á mínum skrifum!

(Bendi fólki á að þetta var sagt í kaldhæðni)

Ég er reyndar búinn að fatta þetta. Maður fær ekki fólk til að koma á síðuna manns nema vera með slúður, þess vegna er í bý gerð að koma með svoleiðis á næstu misserum. Stay tuned. Hver vill ekki vita hver fer heim með hverjum??? Ég bara spyr.

Bikarúrslit í fótboltanum á morgun, vona að þið mætið öll, því ekki ætla ég að gera það.

Hvað er málið með fangelsi á Íslandi???? Maður sem dæmdur er fyrir morð, er lögfræðingur og starfar á nokkurn hátt sem slíkur innan veggja fangelsins sem talsmaður fanga, spilar fótbolta en hann var einmitt liðtækur í honum hér áður en hann fór á mis. Það er eins og maðurinn gangi laus, hann er búinn að vera 2var í sjónvarpsviðtölum seinasta mánuðinn og gæjinn sýndi enga miskun í kringum glæp sinn!!! Láta kvikyndið rotna einhverstaðar annar staðar en á sjónvarpsskjánum.

En ég er úti eins og Magni í á móti sól.

Setning dagsins: Stop looking at me sswwaannn!!!! (Billy Madison)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 00:20:32 / Harsenal

Tilkynning

Ég ætlaði bara að tilkynna stækkun á fjölskyldu minni. Við Eyrún vorum að fá okkur lítinn hvolp sem hefur verið nefndur Lennon. Hægt er að skoða litla gaurinn á heimasíðunni hans en netfangið er lennon.dyraland.is.

Annars er nú lítið að frétta annað en að karfan er að fara af stað og unnum við Keflvíkingar fyrsta sigurinn á erkifjendunum úr Njarðvík í kveld og þeir verða eflaust mun fleirri þegar líður á veturinn :)

En endilega kíkið á afkvæmið :)

Yfir og út


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 16:45:00 / Harsenal

Nokkur slagorð í tilefni ljósanætur...

Já, í tilefni ljósanætur hef ég ákveðið að leggja til slagorð sem hægt er að nota í markaðssetningu fjölskylduskemmtunarinnar (VÁ!!!), þið getið sjálf dæmt um gæðin.

-Það er betra að vera í Reykjanesbæ á ljósanótt en heima með hettusótt!!

-It´s easy to get into a fight on the night of light´s.

-Það er alveg ljóst að það verður ekki rótt, í kef á ljósanótt.

Já, svona nokkur sem ég er búinn að koma upp með. Ef þið hafið önnur endilega kommenta. En eitt að lokum fyrir Árna vin minn í 17.

-Hey!!! Heitiru Kristján? Koddu þá og verslaðí sautján!

Stay Black, Jack


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 16:42:23 / Harsenal

Maður þarf ekkert að skammast sín fyrir það!

Það er NÁKVÆMLEGA ekki rassgat að gerast hjá mér. Nema kanski helst það að ég er veikur. Maður þarf ekkert að skammast mí fyrir það er það??

Ég þarf ekki heldur að skammast mín fyrir að skammast mín fyrir að halda með Arsenal þessa dagana. ÞEIR GETA EKKI SKORAÐ!!!

Ég skammast mín reyndar fyrir að segja það að ég fór á Paddy´s um helgina. Hvað er málið með staðinn?? Er þetta biðstöð fyrir fólk á leiðinni á Vog?? Ja. mar spyr sig...

Ég ætla að óska vini mínum Árna til hamingju með nýju verslunina sína. Til hamingju Árni minn.

Nú er líka komið upp á yfirborðið að fangavörður á Litla-Hrauni hefur verið tekinn fyrir að smygla dópi inn til fanganna. Og hann fær líklega Fálkaorðuna fyrir að vinna að því að gera íslenska fanga af þeim ánægðustu í heiminum. Einnig vann hann að því að gera íslensku fangelsin að einu 5 stjörnu fangelsunum í heminum.

 

&āƘȌ

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 15:02:07 / Harsenal

Búlgaría...

Mæli með því!!!! Já, eins og alþjóð veit hélt ég utan í víking ásamt spússu minni og var haldið á Golden Sands (Hljómar svolítið dramatískt). Þar var mikið gert sér til dundurs.

Við (hún) versluðum þó nokkuð af (ó)nytsamlegu dóti sem kemur væntanlega alls ekki að góðum notum í framtíðinni, það er nátturlega skemmtilegast að eiga svoleiðis dót.

Einnig fórum við í svokallað parasailing þar sem maður er dreginn á eftir bát í fallhlíf og það var helvíti mögnuð reynsla. Einnig fórum við á Jet-ski og héngum í einhverjum hringjum og vorum dreginn á bát lengst út á svartahafið, það var hin ágætasta skemmtun.

Þegar við vorum ekki að reyna að deyja drukkum við bjór og hina ýmsu kokkteila, borðuðum og Eyrún dundaði sér við að brenna sig og ég rölti um göturnar og keypti handklæði. Mæli með því að efa ykkur vantar handklæði að þið skeelið ykkur til búlgaríu og kaupið ykkur, þau eru mjög góð og kosta sama og eggert.

En þá aðeins að Verslunarmannahelginnini. Við vorum á leiðinni á Akureyri en hættum við og fórum í kringluna og léttum aðeins á budduni. Fengum svo gefins miða á innipúkan og sáum Hjálma fara af kostum á Laugardaginn og Mugison, Ampop og Köntrísveit Baggalúts í gær og urðum ekki fyrir vonbrigðum. En ég ætla að fara að segja þetta gott.

Þetta Gott


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 23:08:25 / Harsenal

Shine On You Crazy Diamond

Já, nú hefur demanturinn, Syd Barrett yfirgefið þennan heim. Syd Barrett stofnaði hljómsveitina Pink Floyd ásamt þeim Roger Waters og Nick Mason Íslandsvinum og Rick Wright árið 1965. Syd var aðallagasmiður Pink Floyd á árunum 1965-1968 auk þess að syngja og glamra á gítar. Hann átti flest löginn á fyrstu plötu Pink floyd, Piper at the Gates of Dawn. Hann samdi lög eins og See Emily play, Bike og AStronomy Domine, áður en Roger og félagar neyddust til að láta hann fara árið 1968 en þá var Syd verulega illa farinn af eiturlyfja notkun. Eftir að hann yfirgaf Pink floyd hélt hann samningi við útgáfufyrirtæki Pink Floyd en restin var látin fara frá fyrirtækinu. Syd gaf út slatta af sóló plötum en náði þó aldrei fyrri hæðum. Inn í Pink Floyd í stað Syd kom David Gilmour og reyndist það hin bestasta skipting, enda ættu allar að þekkja sögu Pink Floyd eftir þessa hörmung.

Seinustu árum sínum eyddi Syd búandi í kjallarranum hjá systur sinni, og hlaut alltaf dágóða summu á ári hverju í stefgjöld frá Pink Floyd. Syd er ein stærsta "Cult" hetja þessa eims og er mikið deilt um hvaða áhrif það hefði haft hefði ann haldið geðheilsunni og haldið áfram að leiða Pink Floyd, hver veit?

En ég ætla að enda þetta á því að setja smá brot úr texta lagsins Shine on you Crazy Diamond sem þeir Pink floyd liðar tileinkuðu Syd Barrett, hvíl í friði meistari.

Nobody knows where you are,
How near or how far.
Shine on you crazy diamond.
Pile on many more layers
And I'll be joining you there.
Shine on you crazy diamond.


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 23:29:09 / Harsenal

Maður er bara...

Búinn að vera ráfandi um stjórnlaust síðustu 2 daga vegna þess að leikmenn á HM í fótbolta eru búnir að vera í fríi. Hvað rugl er það að vera með frí svona þegar maður er komin í gírinn??? Jú, auðvitað þurfa leikmenn að safna kröftum fyrir lokasprettinn. En ég er með tillögu sem kemur sér vel fyrir alla íslenska knattspyrnu áugamenn, FIFA á bara að setja upp B-keppni þar sem Ísland spilar á móti Makedóníu í undan úrslitum og síðan spila Færeyjar gegn Úsbekistan og svo er úrslita leikur milli sigur þjóðanna. Þar með er búið að brúa þetta bil sem myndast og Íslendingar gætu hugsanlega unnið titil í fótbolta.

En við þurfum ekki að taka þátt í HM til að vera hamingjusöm, ónei!!! Já, Ísledingar eru víst hamingju samasta þjóð í heiminum og Hólmvíkingar, sem eru þessa dagana að undirbúa hamingju daga, hljóta þá að vera hamingjusamasta fólk í heiminum og ég veit ekki einu sinni hvort þeir séu með fótboltalið.

En nú ætla ég að tilnefna 5 aðila fyrir kosningu "Hamingjusamasti Íslendingurinn", og þið kjósið með að greiða atkvæði í skoðannakönnuninni.

Þeir 5 aðilar sem ég hef ákveðið að tilnefna eru, and the nominatons for the "Bikar" are: Geir Ólafsson, Þorsteinn Joð, Ólafur Þórðarsson, Valgerður "Álgerður" Sverrisdóttir og Bobby Fischer. Allt mjög hamingjusamt fólk, þð getið komið með aðrar tilnefningar í kommenti en ekkert mark er tekið á þeim. Þetta er mín síða.

Eeeeeennnnnn, þá ætla ég að ljúka þessu að sinni endilega greiðið atkvæði

OUT


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 01:21:58 / Harsenal

Þetta..

Er nú meira RUGLIÐ!!!! Kem með stórt blogg innan skamms!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 22:59:04 / Harsenal

Jæja...

Ég ætla að fresta ferðasögunni sem ég var búinn að lofa um sinn. Ég ætla nú samt að setja inn eina gamla sögu frá því ég var lítill snáði sem vissi örlítið minna en hollt þykir.

Já, þetta gerðist þegar ég var í annaðhvort 3. eða 4. bekk, ég átti leið niður í íþróttarmiðstöð Njarðvíkur þar sem fóru fram kapleikir í körfu hjá yngri kynslóðinni. Þar var staðsett sjoppa, tek það fram að þetta var á þeim tíma sem körfuboltamyndir stjórnuðu heiminum, og þannig er mál með vexti að pakkar með körfubolta myndum voru til sölu í sjoppuni á litlar 100 krónur. Litli snáðinn ég hugsaði "Heyrðu ég verð örugglega lang vinsælastur í skólanum ef ég kaupi pakka af þessum!!!!". Svo ég brunaði heim, en þar var enginn. Svo þá mundi ég eftir stóru glasi fullu af eina krónum inn í bílskúr, og minnz byrjaði að telja. "1,2,27,63,89,97,98,99,100!!!! Nu verð ég flottastur, hahaha!!!" hugsaði litla greyið og brunaði niður í íþróttarhús til að kaupa pakka, en hvað haldiði??? Ég skellti peningnm 100 á borðið og sagði "Ég ætla að fá pakka af körruboltamyndum, TAKK.", ég ætlaði sko að vera flottastur. "Þetta eru bara 99 krónur" sagði gaurinn sem var að vinna í sjoppunni, "Ooohhh, get ég fengið eitthvað fyrir það???" sagði ég og fór svo út með eina litla kókdós!!!! Svona er stundum farið illa með lítil börn.

Ég tek það fram að þetta gerðist fyrir tíma umboðsmanns barna, svo ég trúi því statt og stöðugt að nú séu breyttir tímar og ekki sé farið svona með börn í dag!

Endilega kommentið

OUT DorÍs


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan